Jónsmessuhátíð 2026
20. júní 2026 kl. 15:00
Staður: Sportplatz Turnverein Liesing, Pellmanngasse 8, 1230 Wien
Hala niður viðburði (.ics)Kæru, Íslendingar,
Félag Austurríkis og Norðurlandanna (VÖNL) efnir til Jónsmessuhátíðar þann 20. júní 2026 kl. 15–22 á Sportplatz Turnverein Liesing við Pellmanngasse 8, 1230 Wien.
Hátíðin er sérstaklega til heiðurs Íslands í ár! Framlag okkar Íslendinga til viðburðarins er að syngja nokkur sígild þjóðlög. Ég og aðrir stjórnarmeðlimir fölumst eftir söngfuglum okkur til stuðnings—við erum öll leikmenn á því sviði og væri því gott ef um hópsöng yrði að ræða. Ágóði af söngnum rennur til félagsins.
Við höfum fengið upplýsingar um að fólk á okkar vegum fái frítt inn á viðburðinn. Þá verður þar tombóla með tvo flugmiða til Íslands í aðalverðlaun! Hátíðin er fjölskylduvæn.
Ef einhverjir luma á íslenskum búningum og öðrum hefðum eða atriðum sem gætu átt rullu að spila á hátíðinni þætti okkur það mikilsvert.