Íslendingafélag Austurríkis
← Allar fréttir

Jónsmessuhátíð 2026

20. júní 2026

Jónsmessuhátíð 2026

Á vormánuðum hafði Hermann Kroiher samband við Íslendinganefndina og lýsti áhuga sínum á að heiðra Ísland á komandi Miðsumarhátíð VÖNL. Hermann þekkja eflaust einhverjir, enda er hann fastagestur á þorrablótinu okkar ár hvert og hrókur alls fagnaðar. Hann var í stjórn Austria National Tourist Office fyrir Ísland í tólf ár og hefur hann heimsótt landið okkar um það bil tuttugu sinnum. Hann setti aftur á fót austurríska-íslenska félagið í Vín og þar kemur hans tenging við VÖNL, en það er regnbogasamstarf annarra austurrískra félaga við Norðurlöndin og Eystrarsaltslöndin. Ár hvert halda þau Miðsumarhátíð og taka fyrir eitt land sem heiðursland. Að sjálfsögðu tókum við vel í þessa hugmynd Hermanns og vorum við öll af vilja gerð til þess að koma Ísland á framfæri þetta árið.

Íslendinganefndin mætti á hátíðina með brot af því besta í mat, drykk og söng. Við buðum gestum upp á harðfisk, lakkrís, íslenskar pönnukökur og kleinur. Fyrir þá sem vildu smakka og höfðu hugrekki til buðum við íslenskt brennivín. Íslenska ullin var til sýnis, bæði lopapeysur og skotthúfur. Það sem vakti ef til vill hvað mesta gleði var þegar nefndin steig á stokk og söng nokkur vel valin íslensk þjóðlög. Þar sem Íslendingar eru, þar er gleði og söngur. Mikill áhugi var um Ísland og íslenska siði og menningu. Það var nóg að gera hjá okkur í nefndinni að svala forvitni fólks og áttum við mörg samtöl þar sem við svöruðum spurningum eftir bestu getu. 

Dagurinn og kvöldið var einstaklega vel heppnað og erum við viss um að við höfum verið landi okkar og þjóð til sóma þennan dag, þótt við segjum sjálf frá. 

Við viljum endilega þakka Hermann Kroiher fyrir þetta skemmtilega boð og vonumst við til þess að fleiri samlandar okkar mæti á næsta ári!