Þorrablót 2026
14. mars 2026

Laugardaginn 14. mars 2026 var haldið Þorrablót í Vínarborg á Club Berlin á Gonzagagasse 12. Fjörutíu meðlimir og gestir komu þar saman og borðuðu hefðbundinn íslenskan mat, sungu, og dönsuðu.
Sérstakar þakkir til allra sem komu með mat og hjálpuðu við undirbúning. Myndir frá kvöldinu geta skráðir meðlimir nálgast inni á meðlimasvæði síðunnar. Ef þið lumið á myndum frá kvöldinu sendið endilega tölvupóst á stjorn@islendingar.at.